Aha, sei-sei, já-já

From LazyTown Wiki

"Aha sei sei já já" is a song from Jól í Latabæ. It is a redone version of Ómar Ragnarsson's song "Aha, sei-sei, já-já" from 1968.

Lyrics

Eiga hanar nokkurn tímann egg?

Nei nei.

Eru hljóðin í kúnum kölluð hnegg?

Nei nei.

Eru Breiðhyltingar breiðleitir

og Rangæingar rangeygðir?

Nei nei, sei sei, já já.


Eru kisur alveg hárrauðar?

Nei nei.

Eru fermingar í febrúar?

Nei nei.

Jú, rangt er ykkar svar í svip,

því sífellt eru fermd hér skip.

Aha, sei sei, já já.


Hlíða krakkarnir í Hlíðunum

Já já.

Synda krakkarnir í Sundunum?

Já já.

Nei, ekkert barn fer oní dröfn

í sundunum við Sundahöfn.

Aha, sei sei, já já.


Eru Framararnir framsettir?

Nei nei.

Eru KR-ingar köflóttir?

Nei nei.

Valsmenn, fundu þeir upp vals,

er geimskip geymt í koti karls?

Nei nei , sei sei, já já.


Byrjar jólahátíð klukkan sex?

Já já.

Er til staur sem borðar matarkex?

Nei nei.

Jú, þekkið ekki þennan gaur

þetta er hann Stekkjastaur

Aha, sei sei, já já


Virðist Grýla voða sæt og fríð?

Nei nei.

Vitiði um dýr sem fylgja ykkur alla tíð?

Nei nei.

Jú, þið eruð meiri álfarnir

það eru á ykkur kálfarnir.

Aha, sei sei, já já.


Keyra allir lafhægt eins og lús?

Nei nei.

Hefur ein mús fleiri eyru en engin mús?

Nei nei.

Nei, því ein mús hefur eyru tvö,

en engin mús hún hefur sjö!

Aha, sei sei, já já.


Rennur Smáralind með lækjarnið?

Nei nei

Finnast mýs sem kettir líta ei við?

Nei nei

Jú, kisa verður varla fús,

að veiða og éta tölvumús!

Aha, sei sei, já já, sei sei, já já.